Philippe Coutinho, sóknarmaður Liverpool er á förum til Barcelona fyrir 145 milljónir punda.
Félagaskiptin hafa legið lengi í loftinu en leikmaður vildi fara síðasta sumar en Liverpool hafnaði þremur tilboðum í hann.
Coutinho flýgur til Spánar í kvöld en margir stuðningsmenn Liverpool eru ósáttir með Coutinho að yfirgefa félagið á miðju tímabili.
Scott Saunders, ritstjóri 90Min kemur með áhugaverðan punkt í kvöld en hann segir að Coutinho hafi farið til Spánar til þess að vinna titil.
„Coutinho fer núna og verður Deildarmeistari með Barcelona í vor,“ sagði hann á Twitter en færsluna sem hann setti inn má sjá hér fyrir neðan.
For those questioning why Coutinho was desperate to go now, even though he won't play in the UCL…
He'll win a league title later this year. That's why.
— Scott Saunders (@_scottsaunders) January 6, 2018