Liverpool tekur á móti Manchester City í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um þar næstu helgi.
Liverpool er í fjórða sæti deildarinnar með 44 stig en City er sem fyrr á toppi deildarinnar með 62 stig.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool reiknar með því að Philippe Coutinho, sóknarmaður liðsins verði klár í slaginn þann 14. janúar.
Coutinho er sem stendur að glíma við meiðsli en hann er sterklega orðaður við Barcelona þessa dagana.
Liverpool vill fá 140 milljónir punda fyrir hann en talið er að Barcelona muni leggja fram formlegt tilboð í hann á allra næstu dögum.