Olivier Giroud, framherji Arsenal er að ganga til liðs við Chelsea.
Framherjinn hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal sem var að kaupa Pierre-Emerick Aubameyang í morgun.
Hann vill fá að spila meira og eiga þannig möguleika á því að fara með Frökkum á HM í Rússlandi.
BBC greinir frá því í dag að Arsenal reyni nú að fá David Luiz, varnarmann Chelsea í einhversskonar skiptum fyrir Giroud.
Luiz hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea að undanförnu og er Antonio Conte sagður vilja losna við varnarmanninn.