Javier Mascherano mun ganga í raðir Hebei China Fortune þann 26 janúar. Barcelona hefur staðfest.
Mascherano bindur þar með enda á sjö og hálfs árs dvöl sína hjá félaginu.
Mascherano er 33 ára gamall og ætlar að tryggja sér hressilega fjármuni á síðustu árum ferilsins.
Ferill Mascherano hefur verið magnaður hjá Börsungum en hann lék áður með West Ham og Liverpool.
Mascherano mun geta spilað með Börsungum í bikarnum á fimmtudag og heldur svo til Kína.
Það var grátið þegar Mascherano sagði bless á fréttamannafundi í morgun.