Philippe Coutinho, sóknarmaður Barcelona gekk til liðs við félagið fyrr í þessum mánuði.
Hann kom til félagsins frá Liverpool en spænska félagið borgaði í kringum 145 milljónir punda fyrir hann.
Coutinho fékk treyjunúmer hjá félaginu í dag og mun hann klæðast treyju númer 14 hjá félaginu.
Javier Mascherano hefur verið í treyjunni, undanfarin ár en hann er að ganga til liðs við Hebei China Fortune í Kína.
Coutinho mun að öllum líkindum spila sinn fyrsta leik fyrir félagið í kringum mánaðarmótin en hann er að jafna sig á meiðslum.