Wayne Rooney hefur sett BMW I8 bifreið sína á sölu enda hefur kappinn misst ökuréttindi sín.
Rooney var gripinn að keyra fullur á dögunum þegar hann ók konu af bar heim.
Eiginkona Rooney var í sumarfríi þegar Rooney skellti sér út á lífið, það fór ekki vel.
Nú hefur Rooney sett bílinn á sölu en Rooney vill 65 þúsund pund fyrir bifreiðina.
Það er 50 þúsund pundum minna en Rooney borgaði fyrir bílinn árið 2015.
Mynd af bílnum á sölu er hér að neðan.