Steven Defour miðjumaður Burnley og belgíska landsliðsins er ánægður með liðsfélaga sinn, Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann hefur verið einn allra besti leikmaður Burnley á þessu tímabili. Rætt var við Defour eftir 0-1 tap gegn Manchester United um helgina þar sem Jóhann Berg átti góðan leik.
,,Við spiluðum vel og fengum færi til þess að skora,“ sagði Defour.
Defour segir að Jóhann Berg sé að bæta leik sinn mikið og það sé gaman að fylgjast með því.
,,Hann er mjög góður, hann lærði mikið af síðasta ári. Hann hefur bætt sig mikið, hann er mjög mikilvægur fyrir okkur. Vonandi heldur hann svona áfram.“