Philippe Coutinho, sóknarmaður Barcelona tók þátt í æfingu liðsins í morgun en hann kom til félagsins á dögunum.
Barcelona borgaði Liverpool í kringum 145 milljónir punda fyrir hann en hann hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri.
Coutinho á ennþá eftir að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið en hann virðist vera að jafna sig á meiðslunum og tók þátt í sinni fyrstu æfingu í morgun eins og áður sagði.
Myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.