Henrikh Mkhitaryan miðjumaður Manchester United er ekki á leið til London þessa stundina að klára skipti sín til Arsenal.
Arsene Wenger stjóri Arsenal sagði í dag að líkur væru á að Mkhitaryan kæmi til félagsins.
Alexis Sanchez fer þá til United í skiptum en Mkhitaryan hefur virkað efins með það fara til Arsenal.
Mkhitaryan var mættur á æfingu hjá United í dag en ekki er víst að hann taki mikið þátt.
United vill koma honum til Arsenal svo að Sanchez geti spilað með United gegn Burnley um helgina.