Inter Milan reynir að fá Daniel Sturridge sóknarmann Liverpool að láni út tímabilið.
Sky Sports segir frá en í Bítlaborginni eru menn ekki svo hrifnir af slíku.
Liverpool er tilbúið að selja Sturridge en félagið hefur nú þegar hafnað lánstilboði frá Sevilla.
Sagt er að Liverpool vilji fá í kringum 30 milljónir puna fyrir Sturridge.
Jurgen Klopp hefur ekki viljað spila Sturridge mikið og hentar hann ekki í leikstíl hans.