Gerard Pique hefur framlengt samning sinn við Barcelona til ársins 2022.
Pique hefur spilað 421 leik hjá félaginu og unnið 25 titla á þeim tíma.
Hann ólst upp hjá félaginu áður en hann gekk í raðir Manchester United. Þar spilaði hann lítið áður en hann snéri aftur heim.
Pique er lykilmaður í liði Barcelona en í nýjum samningi hans er 500 milljóna evru klásúla.