Paul Lambert er að krækja í sinn fyrsta leikmann eftir að hann var ráðinn stjóri Stoke City.
Stoke er að ganga frá samningi við Augsburg vegna Kostas Stafylidis.
Stafylidis hefur ekki spilað mikið í ár en hann er vinstri vængbakvörður.
Hann er snöggur en Stafylidis er 24 ára gamall en Sky Sports segir málið langt komið.
Hjá Augsburg leikur Stafylidis með Alfreði Finnbogasyni.