Emerson Palmieri varnarmaður Roma er á óskalista Chelsea. Sky Italia segir frá þessu.
Sagt er að Chelsea hafi nú spurst fyrir um Emerson.
Antonio Conte vill fá bakvörð í sínar raðir og Roma er til í að selja Emerson.
Roma vill 20 milljónir punda en Roma ætlar að nota peninginn í að bæta hóp sinn.
Emerson er sagður vilja vinna með Conte og er sagður spenntur fyrir Chelsea.