Antonio Conte stjóri Chelsea segist ekki vita til þess að félagið sé að reyna að kaupa Alexis Sanchez frá Arsenal.
Fréttir um slíkt bárust í gær en Conte stjórnar leikmannakaupum Chelsea.
Stjórnarmenn félagsins gætu þó verið að skoða þann möguleika en líklega myndi Conte vita af því.
,,Ég veit það ekki en ég held ekki,“ sagði Conte um málið við fréttamenn í dag.
Það eru því mestar líkur á því að Sanchez gangi í raðir Manchester United ef orð Conte eru sönn en Manchester City hefur gefist upp.
Conte on if @ChelseaFC trying to sign @Alexis_Sanchez "I don't know but I don't think so."
— Simon Stone (@sistoney67) January 16, 2018