Henrikh Mkhitaryan leikmaður Manchester United hefur ekki tekið ákvörðun um framtíð sína. BBC segir frá.
United vill koma sóknarmanninum frá Armeníu til Arsenal, til þess að fá Alexis Sanchez frá Arsenal.
BBC segir að Sanchez hafi náð samkomulag við Sanchez en hvorki Arsenal eða United vilja klára málið nema Mkhitaryan komi til Lundúna.
BBC segir Mkhitaryan enn velta því fyrir sér hvað hann eigi að gera, hann skoði Arsenal, aðra klúbba eða að vera áfram hjá United.
United vill reyna að klára málið á allra næstu dögum til að fá Sanchez í sínar raðir.