Samvkæmt enskum blöðum í dag halda viðræður Manchester United og Arsenal áfram.
United vill krækja í Alexis Sanchez og er tilbúið að láta leikmenn fara til Arsenal.
Henrikh Mkhitaryan er sagður vera sá leikmaður sem United er til í að láta fara.
Ensku blöðin í dag segja hins vegar að Arsenal reyni að fá Anthony Martial í skiptum.
Ólíklegt er að United sé tilbúið að sleppa 22 ára leikamnni sem gæti átt mikla framtíð fyrir sér.
Ljóst er þó að United er tilbúið að ganga langt til að fá Sanchez en búist er við að lausn á hans málum finnist í vikunni.