Manchester United tekur á móti Stoke í mánudagsleik ensku úrvalsdeildarinnar og er leikurinn að hefjast.
Henrikh Mkhitaryan, sóknarmaður United er ekki í hóp í kvöld en hann hefur ekki átt fast sæti í liði United á þessari leiktíð.
Enskir fjölmiðlar vilja meina að Mkhitaryan gæti farið til Arsenal í skiptum fyrir Alexis Sanchez en sá síðarnefndi er að öllum líkindum að yfirgefa Arsena.
„Ég væri að ljúga að ykkur ef ég segði að það væri taktísk ákvörðun að vera ekki með Mkhitaryan í kvöld,“ sagði Mourinho.
„Ég valdi þá leikmenn sem eru 100% með hausinn í lagi og framtíð þeirra er ekki í neinni óvissu,“ sagði hann að lokum.