Alexis Sanchez, sóknarmaður Arsenal er sterklega orðaður við Manchester United þessa dagana.
Hann var ekki í leikmannahópi Arsenal sem tapaði 1-2 fyrir Bournemouth um helgina en samningur hans rennur út í sumar.
Arsenal er tilbúið að selja hann núna fyrir rétta upphæð, á meðan þeir geta fengið eitthvað fyrir hann en Manchester City og Manchester United hafa bæði sýnt honum mikinn áhuga.
Talið var næsta víst að hann væri að fara til United en samkvæmt MEN hefur City ekki gefist upp á að fá hann.
City ætlar að gera eina lokatilraun í viðbót og eru tilbúnir að hækka tilboð sitt umtalsvert, til þess að tryggja sér þjónustu Sanchez.