Chelsea íhugar það alvarlega að gear tilboð í Andy Carroll framherja West Ham. Guardian segir frá.
Antonio Conte stjóri Chelsea vill bæta við sóknarmanni í hóp sinn.
Sagt er að Conte vilji einnig reyna að fá Alexis Sanchez en Manchester United og Manchester City vilja kauða.
Carroll gæti leyst eitthvað af vandamálum Chelsea en liðið hefur ekki skorað í þremur leikjum í röð.
Möguleiki er á að Chelsea taki Carroll á láni út tímabilið en Guardian segir einnig möguleika á Chelsea kaupi hann.