Albert Guðmundsson var gjörsamlega allt í öllu þegar Ísland vann 4-1 sigur á Indónesíu í dag.
Albert kom inn sem varamaður á 27 mínútu leiksins og jafnaði leikinn fyrir Ísland undir lok fyrri hálfleiks. Hann tók svo hornspyrnuna sem annað mark Íslands kom upp úr en það skoraði Arnór Smárason.
Smelltu hér til að sjá þrennu Alberts.
Albert skoraði þriðja mark Íslands úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Hann fullkomnaði svo þrennu sína á 71 mínútu með einstaklings framtaki af bestu gerð.
Jóhann Berg Guðmundsson þekkir það að skora þrennu fyrir íslenska landsliðið en það gerði hann árið 2013 gegn Sviss í undankeppni HM.
,,Velkominn í hópinn Albert,“ sagði Jóhann á Twitter síðu sinni í dag.
Albert er tíundi leikmaður Íslands sem skorar þrennu í leik en mbl.is segi frá. Sjáðu þá sem eru í þrennu klúbbnum hérna.
Þrennu Jóhanns gegn Sviss má sjá hér að neðan.
Velkominn í hópinn @snjallbert ⚽️⚽️⚽️
— Johann B Gudmundsson (@Gudmundsson7) January 14, 2018