N’Golo Kante miðjumaður Chelsea varð fyrir því óhappi að lenda í árekstri á leið sinni í leik gegn Arsenal í gær.
Miðjumaðurinn klessti Mini bifreið sína sem hann elskar afar heitt.
Kante hefur vakið athygli fyrir að keyra um á bíl sem kostar aðeins rúmar 2 milljónir.
Miðjumaurinn keyrði á stóran sendibíl og er Mini bíll hans nokkuð illa farinn.
Kante lét þetta ekki á sig fá og mætti í leikinn og spilaði í markalausu jafntefli.