Jurgen Klopp stjóri Liverpool vill ekki ræða Mario Götze leikmann Borussia Dortmund og sögusagnir um hann.
Götze hefur verið orðaður við Liverpool síðustu daga en hann og Klopp eru miklir vinir.
Götze hefur í raun aldrei fundið sitt besta form eftir að hann hætti að starfa með Klopp.
Hann fór til FC Bayern en snéri aftur til Dortmund en hefur ekki náð flugi.
,,Ég vil ekki ræða hann á fréttamannafundi á Englandi fyrir leik gegn Chelsea,“ sagði Klopp en liðið mætir Chelsea í deildarbikarnum á morgun.
,,Ef ég vil ræða við Mario þá hringi ég bara í hann, það er ekki flóknara en það.“