Reynir Sandgerði er meistari í 4.deild karla en liðið vann Skallagrím í úrslitaleiknum í dag mjög sannfærandi.
Það var mikill munur á liðunum í leiknum en Reynir tók forystuna snemma leiks áður en Skallagrímur jafnaði fimm mínútum síðar.
Reynir ákvað svo að fara í hærri gír og skoraði sex mörk til viðbótar og vann öruggan 7-1 sigur í úrslitaleiknum. Bæði lið fara þó upp um deild.
Kórdrengir og Álftanes áttust svo við í leik um síðasta lausa sæti 3.deildar. Þar höfðu Kórdrengir betur 3-0 og fara upp með Reyni og Skallagrím.
Reynir S. 7-1 Skallagrímur
1-0 Magnús Þórir Matthíasson
1-1 Kristinn Aron Hjartarson
2-1 Magnús Þórir Matthíasson
3-1 Max Grammel
4-1 Strahinja Pajic
5-1 Óli Baldur Bjarnason
6-1 Óli Baldur Bjarnason
7-1 Magnús Þórir Matthíasson
Álftanes 0-3 Kórdrengir
0-1 Lassana Drame
0-2 Markaskorara vantar
0-3 Jón Brynjar Jónsson