Jóhann Berg Guðmundsson kantmaður Burnley og leikmaður íslenska landsliðsins er aftur klár í slaginn.
Þrjár vikur eru síðan að Jóhann meiddist á læri og missti hann af leik gegn Manchester United.
Þá missti Jóhann af landsleikjum Íslands gegn Sviss og Belgíu.
Hann er hins vegar heill heilsu og ætti að byrja þegar Burnley heimsækir Wolves á sunnudag.
Jóhann hefur lagt upp eitt mark á þessu tímabili en hann var einn besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð.