Stuðningsmenn Chelsea hafa varla haldið vatni yfir frammistöðu, Jorginho, eftir að hann kom til félagsins í sumar.
Napoli keypti Jorginho frá Napoli í sumar en miðjumaðurinn knái hefur byrjað með látum.
Jorginho er 26 ára gamall Ítali sem á ættir að rekja til Brasilíu. Þrátt fyir að hafa verið aðeins nokkra mánuði á Englandi þá hugsar hann til heimalandsins.
Jorginho á sér þann draum að snúa aftur heim til Ítalíu. ,,Það voru nokkrar ástæður fyrir því að ég yfirgaf Napoli,“ sagði Jorginho.
,,Ég gat ekki ráðið þessu einn, Seria A er ein besta deild í heimi og ég vonast til að snúa þangað aftur.“