Adam Lallana miðjumaður Liverpool gæti verið meiddur í einhvern tíma eftir að hafa meiðst á æfingu í dag.
Lallana var mættur aftur á æfingu með enska landsliðinu eftir að hafa misst af sæti í HM hópnum í sumar.
Lallana yfirgaf hins vegar æfinguna í dag meiddur, ekki er vitað um alvarleika meiðslanna.
Lallana hefur verið mikið meiddur síðustu mánuði og virðist eiga í vandræðum með að koma sér aftur á flug.
Lallana missti af stórum hluta á síðustu leiktíð vegna meiðsla og hefur ekki fundið sitt gamla form á nýjan leik.