Jose Mourinho, stjóri Manchester United, var gríðarlega ánægður í dag eftir seinna mark liðsins gegn Burnley á Turf Moor.
United hafði tapað tveimur leikjum í röð í deildinni áður en liðið heimsótti Burnley í fjórðu umferð í dag.
Mourinho er ekki vanur að sýna mikil svipbrigði á hliðarlínunni en hann var afar kátur eftir seinna mark Romelu Lukaku í leiknum.
Mourinho stóð upp úr sínu sæti og fagnaði markinu vel enda um gríðarlega mikilvægan leik að ræða.
Hér má sjá hvernig Mourinho brást við.
Jose Mourinho celebrating United’s second goal.. #mufc #UsAgainstTheWorld pic.twitter.com/PzWnGFlfaz
— Aditya Rathod (@aditya_reds) 2 September 2018