Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru ekki í of góðri stöðu í Evrópudeildinni eftir leik við Olympiakos í kvöld.
Um var að ræða fyrri leik liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar en leikið var í Grikklandi.
Olympiakos var mun sterkari aðilinn í leik kvöldsins og hafði að lokum betur með þremur mörkum gegn einu.
Jói Berg var að sjálfsögðu í byrjunarliði Burnley og lék 76 mínútur og fékk gult spjald í tapinu.
Chris Wood gerði eina mark Burnley í leiknum en liðið missti Ben Gibson af velli með rautt spjald á 60. mínútu leiksins.