Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í öllum stærstu deildum Evrópu er nú opinn og eru fjölmörg lið að skoða í kringum sig.
Hér má sjá pakka dagsins.
Real Madrid hefur skellt 670 milljóna punda verðmiða á miðjumanninn Luka Modric til að fæla burt Inter Milan. (Mirror)
Manchester United hefur náð samkomulagi við varnarmanninn Yerry Mina sem spilar með Barcelona en á eftir að ná samkomulagi við félagið. (Mundo Deportivo)
Barcelona er að tryggja sér miðjumanninn Arturo Vidal frá Bayern Munchen fyrir 27 milljónir punda. (Guardian)
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, ætlar að ræða við Thibaut Courtois, markvörð liðsins, í dag en hann er á óskalista Real Madrid. (Star)
Bournemouth þarf að borga 30 milljónir punda ef félagið vill fá miðjumanninn Jefferson Lerma frá Levante. (Sun)
Leander Dendoncker, leikmaður Anderlecht, hefur hafnað því að ganga í raðir Wolves og Crystal Palace. (Sun)
Charlie Adam, leikmaður Stoke, hefur áhuga á að snúa aftur til Rangers áður en ferli hans lýkur. (Talksport)
Chelsea hefur áhuga á miðjumanninum Mateo Kovacic hjá Real Madrid sem vill ekki ganga í raðir Manchester United. (Calciomercato)