Lucas Digne skrifaði á dögunum undir samning við Barcelona en hann kemur til félagsins frá Barcelona.
Fyrrum liðsfélagi Digne, Yerry Mina er einnig orðaður við Everton en hann er á mála hjá Barcelona.
Everton og Manchester United eru sögð hafa áhuga en Digne sagði varnarmanninum að koma með sér til Englands.
,,Ég vona að ég sjái hann hérna en ég hef ekki hugmynd. Hann mun velja það besta í stöðunni og við sjáum til,“ sagði Digne.
,,Ég sagði honum að koma með mér en við sjáum til. Ég veit ekkert, hann er góður leikmaður og góður náungi.“