Leicester City á Englandi hefur fest kaup á markverðinum Danny Ward en þetta staðfesti félagið í kvöld.
Ward er 25 ára gamall landsliðsmaður Wales en hann hefur verið á mála hjá Liverpool frá árinu 2012.
Ward var ekki mikið notaður á Anfield en hann á að baki tvo deildarleiki fyrir Liverpool.
Ward spilaði með Huddersfield í láni tímabilið 2016/2017 er liðið tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Ward kostar Leicester 12,5 milljónir punda og gæti verið að taka við af Kasper Schmeichel sem er á förum.