Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:
Heimir Hallgrímsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í dag fyrir leikinn mikilvæga gegn Nígeríu.
Sigur fer langt með að koma Íslandi áfram í 16 liða úrslit eftir slæmt tap Argentínu gegn Króatíu í gær.
Jafntefli gætu líka verið fín úrslit vegna þess að þá hafa Króatar unnið riðil okkar og við mætum þeim í síðasta leik.
Heimir Hallgrímsson, breytir um leikkferfi frá jafnteflinu við Argentínu og fer í 4-4-2. Jóhann Berg Guðmundsson er ekki með vegna meiðsla og Emil Hallfreðsson fer á bekkinn.
Inn koma Rúrik Gíslason og Jón Daði Böðvarsson frá síðasta leik.
Byrjunarliðið:
Hannes Þór Halldórsson
Birkir Már Sævarsson – Ragnar Sigurðsson – Kári Árnason – Hörður Björgvin Magnússon
Rúrik Gíslason – Aron EInar Gunnarsson – Gylfi Þór Sigurðsson – Birkir Bjarnason
Alfreð Finnbogason – Jón Daði Böðvarsson