Fylkir vonast til þess að Ólafur Ingi Skúlason komi til félagsins frá Karabükspor þann 15. júlí. Frá þessu sagði Helgi Sigurðsson þjálfari liðsins í Akraborginni.
Ólafur hefur lengi daðrað við það að koma heim og er samningur hans í Tyrklandi á enda í sumar.
Ólafur fer að öllum líkindum með íslenska landsliðinu á HM en eftir það vonast Fylkir til að fá hann.
„Ásgeir Eyþórsson er að koma til baka til okkar í lok maí og við vonumst eftir að Ólafur Ingi Skúlason komi eftir HM,“ sagði Helgi í Akraborginni.
Um var að ræða gríðarlegan liðsstyrk fyrir Fylki en Ólafur ólst upp í Fylki.