Chelsea tók á móti Tottenham í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leiknum lauk með 3-1 sigri gestanna.
Alvaro Morata kom Chelsea yfir á 30. mínútu en Christian Eriksen jafnaði metin fyrir Chelsea undir lok fyrri hálfleik með ótrúlegu marki.
Dele Alli kom Tottenham svo yfir á 62. mínútu og hann gerði svo út um leikinn, fjórum mínútum síðar og lokatölur því 3-1 fyrir Tottenham.
Markið hjá Christian Eriksen var magnað en hann fékk boltann, vel fyrir utan teig og lét vaða í þverslánna og inn.