Pierre-Emerick Aubameyang var hetja Arsenal er Stoke heimsótti liðið í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Leikurinn var jafn og Arsenal var ekki að spila vel og þá sérstaklega í fyrri hálfleik.
Það var á 75 mínútu sem Bruno Martins Indi braut á Mesut Özil innan teigs.
Pierre-Emerick Aubameyang steig á punktinn og skoraði af nokkru öryggi.
Hann skoraði svo aftur tíu mínútum og sigurinn í höfn. Nokkrum mínútum síðar fékk Arsenal aðra vítapsyrnu og Aubameyang leyfði hann Alexandre Lacazette að taka hana, hann skoraði af öryggi.
Stúkurnar hjá Arsenal voru hálf tómar eins og sjá má hér að neðan.