Adam Lallana miðjumaður Liverpool var niðurlútur í búningsklefa Liverpool eftir sigur á Crystal Palace.
Lallana kom inn sem varamaður á 65 mínútu í 1-2 sigri.
Fimm mínútum síðar var Lallana farinn af velli og það meiddur.
,,Þetta er ekki gott, hann er mjög niðurlútur í klefanum núna,“ sagði Jurgen Klopp.
,,Hann er okkar besti vinur, þetta er erfitt. Þetta virðast vera vöðvameiðsli.“