Kolbeinn Sigþórsson framherji Nantes er óleikfær um helgina vegna nárameiðsla.
Um er að ræða sömu meiðsli og héldu honum frá landsleikjunum í Bandaríkjunum.
Kolbeinn er að reyna að koma til baka eftir mjög erfið meiðsli í hné.
Meira:
Tvö erfið ár Kolbeins – Er ljós við enda ganganna?
Bakslag er komið í endurhæfingu hans því samkvæmt fréttum dagsins er hann á leið í myndatöku.
Skoða á hversu alvarleg meiðslin á nára eru en Kolbeinn reynir að koma sér í stand fyrir HM í Rússlandi.
Le Nantais @KSigthorsson est blessé selon Claudio Ranieri. Il va passer une IRM. #FBsport
— Grégory Jullian (@gregory_jullian) March 30, 2018