Tottenham vill fá Bruno Fernandes, miðjumann Sporting en það eru fjölmiðlar í Portúgal sem greina frá þessu.
Sporting hefur hins vegar sett háan verðmiða á leikmanninn og vill fá 87 milljónir punda fyrir hann.
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham vill styrkja miðsvæðið hjá sér í sumar og er hann sagður mikill aðdáandi Fernandes.
Hann hefur spilað 26 leiki fyrir Sporting í deildinni á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað 8 mörk og lagt upp önnur 5.