,,Gælunafnið hans er Thor,“ skrifar Errea á Twitter síðu sinni í dag og birtir þar mynd af Birki Bjarnasyni.
Birkir er þar í nýrri auglýsingu fyrir nýjan landsliðsbúning.
Búningurinn kom út á dögunum og hefur vakið mikla lukku.
Birkir er ein af stjörnum íslenska liðsins og skoraði fyrsta mark Íslands á EM.
Auglýsinguna með Birkki eru hér að neðan.