Barcelona óttast að missa Samuel Umtiti, varnarmann liðsins í sumar.
Varnarmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Manchester United að undanförnu en Jose Mourinho, stjóri liðsins vill styrkja varnarleik liðsins í sumar.
Umtiti er með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum kleift að yfirgefa Barcelona í sumar fyrir 50 milljónir punda.
Mourinho er tilbúinn að borga þessa upphæð og þá er United einnig sagt tilbúið að borga honum talsvert betri laun en hann er að fá hjá Barcelona.
Umtiti kom til Börsunga árið 2016 frá Lyon og hefur verið lykilmaður í liðinu síðan hann kom.