Marcos Alonso, bavörður Chelsea hefur ekki áhuga á því að snúa aftur til Spánar.
Hann hefur verið frábær fyrir Chelsea á þessari leiktíð og hefur meðal annars verið orðaður við Barcelona og Real Madrid.
Alonso er hins vegar ánægður á Englandi en hann varð enskur meistari með liðinu á síðustu leiktíð.
„Ég hef ekki hugsað neitt út í það að snúa aftur, ég er bara að hugsa um Chelsea,“ sagði Alonso.
„Mér líður mjög vel á Englandi og ég er ekki á förum héðan,“ sagði hann að lokum.