Monaco hefur bæst í hóp þeirra liða sem vill krækja í Marouane Fellaini miðjumann Manchester United.
Fellaini verður samningslaus í sumar og fer líklega frítt hjá United.
Fellaini hefur verið með launakröfur sem United hefur ekki viljað samþykkt.
Fellaini er þrítugur en hann hefur verið orðaður við PSG.
Besiktas hefur einnig mikinn áhuga á Fellaini en nú hefur Monaco bæst í hópinn.