Paul Clement hefur verið ráðinn stjóri Reading en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Hann tekur við liðinu af Jaap Staam sem var látinn taka pokann sinn í vikunni eftir slæmt gengi á tímabilinu.
Clement stýrði Swansea fyrir áramót en var rekinn frá félaginu í desember á síðasta ári.
Jón Daði Böðvarsson spilar með Reading og hefur verið iðinn við markaskorun á þessari leiktíð.
Reading er í tuttugasta sæti deildarinnar með 36 stig, þremur stigum frá fallsæti þegar átta leikir eru eftir af tímabilinu.