Manchester United hefur rift samningi sínum við Zlatan Ibrahimovic en þetta var tilkynnt í gærdag.
Hann var magnaður á sínu fyrsta tímabili með United en hann hefur lítið sem ekkert spilað með liðinu á þessari leiktíð vegna meiðsla.
Zlatan hefur samið við LA Galaxy út þetta ár.
Eric Bailly er ekki hrifinn af þessu og sagði Zlatan að fara til fjandans á Instagram.
Ljóst má vera að um grín er að ræða en skilaboð Bailly eru hér að neðan