Luke Shaw bakverði Manchester United langar að bjarga framtíð sinni hjá félaginu.
Shaw hefur fengið mikla gagnrýni frá Jose Mourinho stjóra liðsins.
Allir leikmenn United sem ekki eru í landsliðsverkefni fengu frí í nokkra daga.
Shaw ákvað að vera eftir í Manchester og mætir á æfingasvæði félagsins á hverjum degi og æfir.
Þar reynir hann að sannfæra Mourinho um að hann sé rétti maðurinn til að vera framtíðar vinstri bakvörður félagsins.