Íslenska landsliðið er nú í Bandaríkjunum þar sem liðið leikur tvo æfingaleiki við Mexíkó og Perú.
Leikirnir fara fram dagana 23. mars og 27. mars. en uppselt er á báða leikina.
Liðið æfði í dag og voru leikmenn liðsins í góðum gír en í dag er alþjóðlegi Downs dagurinn.
Leikmenn liðsins æfðu í mislitum sokkum í dag til þess að fagna fjölbreytileikanum.
Mynd af þessu má sjá hér fyrir neðan.
Við fögnum fjölbreytileikanum í dag!#WorldDownsSyndromeDay pic.twitter.com/Wo4jXjbn8e
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 21, 2018