Nú er ljóst að hvorki Jonathan dos Santos eða Gioavni dos Santos verða með mexíkó gegn Íslandi á föstudag.
Liðin mætast þá í æfingaleik í San Francisco.
Um er að ræða síðasta verkefni Íslands áður en hópurinn fyrir Heimsmeistaramótið í Frakklandi verður valinn.
Dos santos bræður eru á meðal bestu leikmanna Mexíkó og verður þeirra saknað í leiknum.
Javier Hernandez framherji West Ham er klár í slaginn en íslenska liðið æfir í fyrsta sinn allt saman í dag.