Dregið var í undanúrslit enska FA-bikarsins núna rétt í þessu.
Manchester United mætir Tottenham á Wembley og þá mætast Chelsea og Southampton.
United vann 2-0 sigur á Brighton í 8-liða úrslitunum og Tottenham vann öruggan 3-0 sigur á Swansea.
Chelsea sló svo Leicester City úr leik núna rétt í þessu eftir framlengdan leik, 2-1 og þá vann Southampton 2-0 sigur á C-deildarliði Wigan.
Leikirnir fara fram 21. apríl og 22. apríl næstkomandi á Wembley.