Liverpool 5 – 0 Watford
1-0 Mohamed Salah (4′)
2-0 Mohamed Salah (43′)
3-0 Roberto Firmino (49′)
4-0 Mohamed Salah (77′)
5-0 Mohamed Salah (85′)
Liverpool tók á móti Watford í ensku úrvalsdieldinni í dag en leiknum lauk með 5-0 sigri heimamanna.
Mohamed Salah skoraði tvívegis fyrir Liverpool í fyrri hálfleik og staðan því 2-0 í leikhléi.
Roberto Firmino skoraði svo þriðja mark heimamanna í upphafi síðari hálfleiks áður en Salah bætti við tveimur mörkum til viðbótar undir lokin og niðurstaðan því 5-0 sigur Liverpool.
Liverpool skýst upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum og er komið í 63 stig en Watford er í ellefta sætinu með 36 stig.