Norwich og Reading eigast nú við í ensku Championhip-deildinni og er staðan 2-0 fyrir heimamenn þegar um hálftími er liðinn af leiknum.
Það voru þeir Mario Vrancic og Grant Hanley sem skoruðu mörk heimamanna í dag en Jón Daði Böðvarsson er ekki í leikmannahópi Reading.
Hann er að glíma við smávægileg meiðsli á kálfa og gat því ekki tekið þátt í leiknum en hann greindi frá þessu á Twitter.
Reading er í nítjánda sæti deildarinnar með 36 stig, þremur stigum frá fallsæti og þarf að fara spýta í lófana ef ekki á illa að fara.
An injury on my calf ruling me out from the Norwich game. Thankfully not a serious one. I'll be back out there sooner than later. #URZ
— Jon Dadi Bodvarsson (@jondadi) March 17, 2018